← Allar fréttir

Gjaldskrá UFA sumarið 2013

Ný gjaldskrá tekur gildi frá og með 1. júni 2013 fyrir sumaræfingar félagsins. Upphæðir taka mið af fjölda æfinga og lengd þeirra. Gjaldskráin er sem hér segir:

Ný gjaldskrá tekur gildi frá og með 1. júni 2013 fyrir sumaræfingar félagsins. Upphæðir taka mið af fjölda æfinga og lengd þeirra. Gjaldskráin er sem hér segir:

  • 9 ára og yngri kr. 15.000
  • 10 - 12 ára kr. 20.000
  • 13 - 15 ára kr. 25.000
  • 16 ára og eldri kr. 30.000

Innifalið í æfingagjaldi sumarsins eru öll þátttökugjöld í mótum sem UFA heldur. Í sumar á þetta við Akureyrarmótið sem haldið verður 17. - 18. ágúst. Sagt er að ein besta æfingin sé að taka þátt í mótum sem þessu og viljum við þannig hvetja alla sem eru að æfa til að vera með. Þær breytingar sem gerðar eru á æfingagjöldum nú eru óhjákvæmilegar enda ekki verið gerðar breytingar á gjaldskránni síðustu 4 ár.

Tekið skal fram að yngri flokkar njóta góðs af styrk sem Samherji veitir þannig að æfingagjöldum er haldið eins lágum og hægt er og ferðkostnaður (rúta) á mót er greiddur af félaginu. Þá geta þeir sem eiga erfitt með að standa undir greiðslu æfingagjalda óskað eftir lækkun eða niðurfellingu þeirra. Ósk þar um þarf að berast stjórn með tölvupósti á netfangið [email protected], og er fullu trúnaði heitið.

Stjórnin.