← Allar fréttir

Frjálsíþrótta- og leikjanámskeið UFA

Eins og í fyrra bíður UFA upp á frjálsíþrótta og leikjanámskeið fyrir 8 ára og yngri nú í júní, um er að ræða 2 tveggja vikna námskeið frá 4.-15. júní og 18.-29. júní verða þau í umsjón Unnars Vilhjálmssonar og Sonju Sifjar Jóhannsdóttur. Á námskeiðunum verður blandað saman æfingum, leikjum og vettvangsferðum. Námskeiðið kostar 8.000 kr, veittur er 25% systkina afsláttur og afsláttur á æfingagjöldum sumarsins ef þátttakendur fara að æfa frjálsar í sumar. Skráningar á [email protected] og [email protected]