← Allar fréttir

Frjálsar í vetur - æfingar hefjast 4. september

Það er frítt fyrir alla iðkendur fram um miðjan september - bara mæta!

Haustæfingar hjá Ungmennafélagi Akureyrar hefjast mánudaginn 4. september.
Æfingar fara fram í Boganum og Íþróttahöllinni.

Það er frítt fyrir alla iðkendur fram um miðjan september - bara mæta!

Athugið að 14 ára og eldri hópurinn byrjar 18. september en hægt er að fá prufutíma með þjálfara fyrr. Sendið póst á [email protected] ef áhugi er fyrir því að prófa og/eða byrja að æfa aftur eftir hlé, áður en núverandi iðkendur koma aftur eftir haustfrí.

  • Áhersla á leiki og gleði með yngstu iðkendum
  • Fjölbreyttar greinar til að æfa
  • Góð alhliða hreyfing og útivist
  • Reynslumiklir þjálfarar

Stundatöflu og gjaldskrá má finna hér: Æfingar haustið 2023
-
--------

Skráning fer fram í gegnum Sportabler vefsíðu eða smáforrit í síma, slóð á vefsíðuna er: https://www.abler.io/shop/ufa
Ef iðkandi er með sérþarfir, tengdar fötlun/greiningum/ofnæmi eða öðru, þá skrifið það í athugasemdir í skráningarferlinu eða sendið póst á [email protected]

Vinsamlega sendið allar spurningar eða ábendingar tengdar skráningunni á [email protected].

Sportabler