Fréttir af Unglingalandsmóti
Um helgina fer fram Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki. Fjölmargir keppendur frá UFA eru á mótinu og eru að gera góða hluti. Hafdís Sigurðardóttir keppti í langstökki kvenna, sem er aukagrein á mótinu, og átti frábæra stökkseríu. Lengsta stökk hennar var 6.72m, glæsilegt stökk en því miður var meðvindurinn 2.8 og því er stökkið ekki gilt sem Íslandsmet. Engu að síður sýndi Hafdís okkur enn og aftur að hún á heilmikið inni. Kolbeinn Höður keppti í 100m hlaupi, sem einnig er aukagrein á mótinu, og hljóp á tímanum 10.52s sem er glæsilegur tími en meðvindurinn var alltof mikill eða 5.0. Aftur að "unglingunum" okkar sem margir hverjir voru að bæta persónulegan árangur í einstökum greinum. Helstu úrslit voru þessi:
11 ára stúlkur
Glódís Edda sigraði í 60m hlaupi á tímanum 8,70s og varð í þriðja sæti í langstökki en hún stökk 3.96m.
Sara Ragnheiður sigraði í 600m hlaupi á tímanum 2:06,01s, varð önnur í langstökki með stökk upp á 4.08m og þriðja í hástökki þegar hún fór yfir 1.20 og í 60m hlaupi á tímanum 9,01s.
12 ára stúlkur
Andrea varð önnur í langstökki með stökk upp á 4.35m og 60m hlaupi á tímanum 9,20s.
Ninna Rún varð önnur í spjótkasti með kast upp á 23.62m.
María Björk varð þriðja í spjótkasti með kast upp á 21.83.
Sunneva sigraði í hástökki þegar hún stökk yfir 1.50m.
12 ára piltar
Jón Þorri varð í þriðja sæti í 600m hlaupi á tímanum 1:50,21s.
13 ára piltar
Ragúel Pino sigraði í 80m hlaupi á tímanum 10,26s og spjótkasti með kast upp á 44.44m.
Kolbeinn Fannar sigraði í hástökki með stökk yfir 1.61m, varð annar í langstökki með stökk upp á 5.02m og þriðji í 80m hlaupi á tímanum 10,82s.
14 ára stúlkur
Ágústa Dröfn var þriðja í 100m hlaupi á tímanum 13,77s, 800m hlaupi á tímanum 2:40,91s og langstökki með stökk upp á 4.60m.
14 ára piltar
Arnar Valur varð annar í 800m hlaupi á tímanum 2:26,28 og þriðji í 100m hlaupi á tímanum 12,18s.
15 ára stúlkur
Sesselja Dís varð önnur í spjótkasti með kast upp á 28.60m.
16-17 ára stúlkur
Selma Líf sigraði í hástökki þegar hún stökk yfir 1.61m.
Rún varð þriðja í langstökki með stökk upp á 4.75m.
16-17 ára piltar
Sigþór Gunnar varð annar í spjótkasti með kast upp á 56.60m og í langstökki með stökk upp á 5.98m.
18 ára stúlkur
Ásgerður Jana sigraði í 100m hlaupi á tímanum 12,80s, 800m hlaupi á tímanum 2:40,78s, hástökki með stökk yfir 1.64m, langstökki með stökk upp á 5.52m, kúluvarp með kast upp á 11.82m og spjótkasti með kast upp á 41.18m.
Guðbjörg Ósk varð þriðja í langstökki með stökk upp á 5.02m og önnur í spjótkasti með kast upp á 34.74m.
Þetta hafa verið glæsilegir keppnisdagar hjá okkar fólki og nú er um að gera að enda helgina með stæl!
ÁFRAM UFA

