Frábær árangur frjálsíþróttafólks UFA að undanförnu
Hafdís Sigurðardóttir hársbreidd frá lágmarki inná EM og góður árangur á RIG og Íslandsmeistaramóti 15-22 ára.
Á nýloknum Reykjavíkurleikum (RIG) átti frjálsíþróttafólk frá UFA á Akureyri frábæra fulltrúa. Hafdís SIgurðardóttir gerði sér lítið fyrir og átti besta afrek kvenna fyrir árangur sinn í langstökki, en hún vann með yfirburðum með stökk uppá 6.49 metra. Jafnaði þar árangur sinn frá SIlfurleikum ÍR þar sem hún setti mótsmet. Hún er einungis einum sentimetra frá því að ná lágmarki á EM innanhúss sem fram fer í Glasgow í mars. Hún vonast til að ná lágmarkinu, en hún er smám saman að komast í sitt fyrra form eftir barnsburð 2017. Annar keppandi frá UFA á Akureyri var Gunnar Eyjólfsson sem keppti í 60m hlaupi og hástökki. Gunnar bætti árangur sinn á árinu í 60 metrunum og stökk í hástökki 1.85. Hann varð í 7.sæti í 60m hlaupi og 4.sæti í hástökki.
EInnig átti UFA gott mót á Íslandsmeistaramóti 15-22 ára sem fram fór í Laugardalshöllinni 26.-27.janúar sl. Þar átti UFA fjöldan allan af vinningshöfum og varð liðið í 5. sæti í heildarstigakeppni af 17 liðum og stúlkur í 15 ára flokki frá UFA voru í öðru sæti. UFA átti Íslandsmeistara í nokkrum greinum; Gunnar Eyjólfsson í hástökki 20-22 ára sem og Ragúel Pino Alexandersson í langstökki 18-19 ára, Andrea Björg Hlynsdóttir í 60m grindahlaupi 15 ára, Selma Hrönn Elvarsdóttir í þrístökki 15 ára og tvöfaldur sigur í 800 m hlaupi stúlkna þar sem Kolbrá Svanlaugsdóttir varð fyrst og Hrönn Kristjánsdóttir önnur.
Fjöldi annara keppenda frá UFA fór ýmist á verðlaunapall, bætti persónulega árangur og árangur á árinu. Upprennandi iþróttafólk sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni. Einnig má geta þess að um næstu helgi, 9.-10.febrúar fer fram Meistaramót Íslands í aldursflokknum 11-14 ára og þar á UFA einnig efnilega keppendur.

