← Allar fréttir

Fimmtudagsmót UFA

Annað fimmtudagsmót UFA var haldið 14.maí síðastliðinn. Þar voru iðkendur heldur betur tilbúnir til keppni og voru meðal annars sett tvö Íslandsmet.

Stefanía Daney Guðmundsdóttir bætti eigið Íslandsmet í 200m í flokki T20 þegar hún hljóp á tímanum 27,84 sek

Gabríel Glói setti glæsilegt Íslandsmet í flokki 16-17 ára (óstaðfest) í 200m hlaupi þegar hann hljóp á tímanum 21,93 sek. Glói sló þar með met Kolbeinn Höður Gunnarsson frá árinu 2012 um 0,01 brot og ekki nóg með það heldur er þetta besti tími karla í ár sem og undir lágmarki á EM18 sem haldið verður á Ítalíu í sumar. En þar sem þetta fimmtudagsmótið er ekki alþjóðlega vottað mót (Global calander) þá gildir árangurinn ekki á EM18.

Garðar Atli Gestsson setti í fluggír og kastaði karlaspjótinu (800gr) 63,69 m sem er vel yfir lágmarki á EM18 en þar sem mótið er ekki Global calander þá gildir árangurinn ekki sem lágmark.

Fleiri voru að gera vel, Ágúst Bergur Kárason bætti sinn besta árangur í 200m, Óskar Ásgeirsson bætti sig 200m og Robert Mackay jafnaði sinn besta árangur í 200m. hlaupi enda voru aðstæður mjög góðar fyrir hlaup.

Nú er keppnistímabilið nýhafið og það verður spennandi að fylgjast með þessum iðkendundum sem og öðrum innan raða UFA.