← Allar fréttir

Byrsmót UFA

Um 170 keppendur tóku þátt í Byrsmóti UFA sem haldið var í Boganum laugardaginn 12.mars. Keppendur komu frá öllum helstu nágrannafélögunum þ.e. frá UMSE, Eik, HSÞ, USAH, ÚÍA, UMSS, Narfa í Hrísey og Glóa á Siglufirði. Skemmtileg og jöfn keppni var í mörgum greinum. Helsti árangur UFA keppenda var eftirfarandi: Rakel Ósk Björnsdóttir sigraði í stangarstökki kvenna, stökk 2,60m hún varð svo í 2.sæti í hástökki, stökk 1,44m og í 3.sæti í kúluvarpi með 8,61m Hilmar Örn Jórunnarson í flokki 12-13 ára sigraði í skutlukasti, kastaði 28,90m og varð í 2.sæti í kúluvarpi með 10,73m Stefán Þór Jósefsson varð í 1.sæti í stangarstökki karla, stökk 3,25m og 3.sæti í kúluvarpi með kast upp á 8,66m Kolbeinn Höður Gunnarsson varð í 1.sæti í 60m hlaupi karla á 7,34sek og Örn Dúi Kristjánsson varð í 2.sæti á 7,38sekHeiðrún Dís Stefánsdóttir sigraði 600m hlaup kvenna á 1:55,90mín Sunna Rós Guðbergsdóttir í flokki 14-15 ára varð í 2.sæti í 60m hlaupi á 8,63sek Fríða Björk Einarsdóttir sigraði kúluvarp 12-13 ára með 9,25m Rún Árnadóttir varð önnur í hástökki 12-13 ára, stökk 1,40m Líney Þrastardóttir í flokki 10-11 ára varð þriðja í langstökki með 3,35m og þriðja í 60m hlaupi á 10,22 sek Ásgerður Jana Ágústsdóttir sigraði hástökk 14-15ára, stökk 1,49m og varð önnur í kúluvarpi með 9,96mMelkorka Ýrr Gunnarsdóttir varð í 2.sæti í 60m hlaupi 12-13ára á 8,85sek, 2.sæti í 600m hlaupi á 2:05,36mín og í 3.sæti í skutlukasti með 19,40mGeir Gunnarsson var í 2.sæti í kúluvarpi karla, kastaði 10,47m og í 2-3.sæti í hástökki en hann stökk 1,67mYngstu keppendurnir um 20 talsins, tóku þátt í þrautabraut og að lokinni keppni var svo pizzuveisla. UFA þakkar stuðningsaðila mótsins sem var Byr, fyrir stuðninginn, Vífilfelli fyrir drykkina, einnig foreldrum og öðrum sem störfuðu við mótið svo og keppendum og gestum fyrir komuna.

Um 170 keppendur tóku þátt í Byrsmóti UFA sem haldið var í Boganum laugardaginn 12.mars. Keppendur komu frá öllum helstu nágrannafélögunum þ.e. frá UMSE, Eik, HSÞ, USAH, ÚÍA, UMSS, Narfa í Hrísey og Glóa á Siglufirði. Skemmtileg og jöfn keppni var í mörgum greinum.

Helsti árangur UFA keppenda var eftirfarandi: Rakel Ósk Björnsdóttir sigraði í stangarstökki kvenna, stökk 2,60m hún varð svo í 2.sæti í hástökki, stökk 1,44m og í 3.sæti í kúluvarpi með 8,61m

Hilmar Örn Jórunnarson í flokki 12-13 ára sigraði í skutlukasti, kastaði 28,90m og varð í 2.sæti í kúluvarpi með 10,73m

Stefán Þór Jósefsson varð í 1.sæti í stangarstökki karla, stökk 3,25m og 3.sæti í kúluvarpi með kast upp á 8,66m

Kolbeinn Höður Gunnarsson varð í 1.sæti í 60m hlaupi karla á 7,34sek og Örn Dúi Kristjánsson varð í 2.sæti á 7,38sek

Heiðrún Dís Stefánsdóttir sigraði 600m hlaup kvenna á 1:55,90mín

Sunna Rós Guðbergsdóttir í flokki 14-15 ára varð í 2.sæti í 60m hlaupi á 8,63sek

Fríða Björk Einarsdóttir sigraði kúluvarp 12-13 ára með 9,25m

Rún Árnadóttir varð önnur í hástökki 12-13 ára, stökk 1,40m

Líney Þrastardóttir í flokki 10-11 ára varð þriðja í langstökki með 3,35m og þriðja í 60m hlaupi á 10,22 sek

Ásgerður Jana Ágústsdóttir sigraði hástökk 14-15ára, stökk 1,49m og varð önnur í kúluvarpi með 9,96m

Melkorka Ýrr Gunnarsdóttir varð í 2.sæti í 60m hlaupi 12-13ára á 8,85sek, 2.sæti í 600m hlaupi á 2:05,36mín og í 3.sæti í skutlukasti með 19,40m

Geir Gunnarsson var í 2.sæti í kúluvarpi karla, kastaði 10,47m og í 2-3.sæti í hástökki en hann stökk 1,67m

Yngstu keppendurnir um 20 talsins, tóku þátt í þrautabraut og að lokinni keppni var svo pizzuveisla.

UFA þakkar stuðningsaðila mótsins sem var Byr, fyrir stuðninginn, Vífilfelli fyrir drykkina, einnig foreldrum og öðrum sem störfuðu við mótið svo og keppendum og gestum fyrir komuna.