Baldvin Þór gerir samning við Nike
Íþróttakarl Akureyrar 2025, hlauparinn Baldvin Þór hefur hefur gert samstarfssamning til þriggja ára við bandaríska íþróttavöruframleiðandann Nike og getur því einbeitt sér af fullum krafti að íþróttaferlinum án þess að hafa fjárhagsáhyggjur. Hann segist nú geta sagt að áhugamálið sé orðið að atvinnu.

Baldvin Þór tilkynnti um samninginn á Instagram um helgina og segja má að um snemmbúinn afmælisglaðning hafi verið að ræða þar sem Baldvin fagnaði 27 ára afmæli sínu í gær, þann 7. apríl.
Baldvin Þór er fremsti hlaupari Íslands í dag. Hann á Íslandsmet í 1500 m, 3000m og 5000 m hlaupum á braut utanhúss, auk 5 km og 10 km götuhlaupum. Þá á Baldvin Íslandsmet innanhúss í 1500 m, 3000 m, 5000 m og 1 mílu hlaupum.
Við óskum Baldvini innilega til hamingju með þennan árangur!

