Anna Sofia og Ágúst Bergur með besta árangur á MÍ 30+
Um helgina fór fram Meistaramót Íslands 30 ára og eldri á Sauðárkróksvelli í veðurblíðu.

Um helgina fór fram Meistaramót Íslands 30 ára og eldri á Sauðárkróksvelli. UFA mætti þangað með sjö liðsmenn sem kepptu í hinum ýmsu greinum og urðu stigahæsta lið mótsins.
Veitt voru verðlaun fyrir besta árangurinn samkvæmt WMA prósentu og var það Anna Sofia Rappich (UFA) og Ágúst Bergur Kárason (UFA) sem voru með hæstu prósentuna í kvenna- og karlaflokki. Anna Sofia hljóp 100 metra hlaup í flokki 55-59 ára á tímanum 15,20. Ágúst Bergur hljóp 200m í flokki 45-49 ára á 25,84 sek. Auk þessa setti Anna Sofia aldursflokkamet í langstökki í flokki 55-59 ára þegar hún stökk 4,20 m.
Veðurblíða var á Sauðárkróki þessa helgi og kunnum við nágrönnum okkar í UMSS bestu þakkir fyrir skemmtilegt mót.








Myndir frá FRÍ, Jónu Finndís Jónsdóttur og Hafsteini Óskarssyni

