← Allar fréttir

Anna Berglind Íslandsmeistari í maraþoni 2018

Góður hópur hlaupara úr UFA tók þátt í Reykjavíkurmaraþoni á laugardaginn. Flestir hlupu 10 km eða hálfmaraþon en nokkrir skelltu sér í heilt maraþon. Anna Berglind Pálmadóttir þreytti frumraun sína í götumaraþoni og varð fyrst íslenskra kvenna í mark á tímanum 3:11:14 og landaði þar með Íslandsmeistaratitli í maraþoni.

Fleiri hlauparar úr UFA náðu góðum árangri í hlaupinu. Baldvin Þór Magnússon varð annar í 10 km hlaupi -og fyrstur íslendinga á 32:57 og Rannveig Oddsdóttir var önnur íslenskra kvenna í hálfmaraþoni á 1:26:37. Þá sigraði kvennasveit UFA Eyrarskokks liðakeppni í hálfmaraþoni.

Unga kynslóðin stóð sig líka vel. Kolbrá Svanlaugsdóttir varð sjötta í aldursflokki 12-15 ára stúlkna og Valur Örn Ellertsson varð níundi í sama aldursflokki stráka.