Akureyrarmótið (1)
Akureyrarmótið verður haldið helgina 30 - 31.ágúst. Yngstu keppendurnir 11 ára og yngri keppa á laugardeginum en 12 ára og eldri keppa báða dagana. Keppnisskrána má sjá inni á FRÍ undir mót - mótaforrit og velja Akureyrarmót. Skráning keppenda fer f...
Akureyrarmótið verður haldið helgina 30 - 31.ágúst. Yngstu keppendurnir 11 ára og yngri keppa á laugardeginum en 12 ára og eldri keppa báða dagana. Keppnisskrána má sjá inni á FRÍ undir mót - mótaforrit og velja Akureyrarmót.
Skráning keppenda fer fram hjá þjálfurunum Tótu ([email protected]) og Heiðrúnu ([email protected]). Ef iðkendur hafa ekki keppt áður þá endilega látið kennitölu fylgja með skráningu sem og þær greinar sem viðkomandi ætlar að keppa í.
Verð fyrir þrautabraut 9 ára og yngri er 1000 krónur.
Verð fyrir 10 - 15 ára er 750 á hverja grein en þó ekki meira en 3500 krónur
Verð fyrir 16 ára og eldri 1500 á hverja grein en þó ekki meira en 5000 krónur.
Hægt verður að greiða á staðnum með peningum eða hafa samband við [email protected] og fá upplýsingar um greiðslutilhögun.
Enn vantar foreldra til starfa og þeir sem geta unnið á mótinu annan daginn eða báða hafi endilega samband við [email protected] og láti vita hvenær þeir geta unnið.
Stjórnin

