← Allar fréttir

Akureyrarmót UFA og Kjarnafæði Norðlenska (3)

Akureyrarmót UFA og Kjarnafæði Norðlenska var haldið 19. og 20. ágúst síðastliðinn. Mótið var vel sótt af norðlenskum frjálsíþróttakrökkum sem létu kuldasteyting og rigningu ekki hafa áhrif á gleðina og keppnisskapið.

Akureyrarmót UFA og Kjarnafæði Norðlenska var haldið 19. og 20. ágúst síðastliðinn.
Mótið var vel sótt af norðlenskum frjálsíþróttakrökkum sem létu kuldasteyting og rigningu ekki hafa áhrif á gleðina og keppnisskapið. Um 100 keppendur mættu til leiks, flestir voru iðkendur UFA en einnig mættu góðir hópar frá Samherjum, Þingeyingum og Skagfirðingum auk annarra sem sumir hverjir komu lengra að.

Keppt var í sex til sjö greinum í flestum aldursflokkum 10 ára og eldri. Keppendur stóðu sig reglulega vel og mikið var um bætingar. Öll úrslit má finna á eftirfarandi hlekk: Þór - Mótaforrit FRÍ

Fyrir yngstu keppendurnar var boðið upp á þrautabraut þar sem þau kepptu í spretthlaupi, langstökki, skutlukasti, grindahlaupi, boðhlaupi og reipitogi. Krakkarnir voru kappsfull og höfðu bæði þau og foreldrar þeirra gaman af, enda hafa þau eflst á fjölbreyttum frjálsíþróttaæfingum sumarsins.

Stjórn UFA þakkar keppendum kærlega fyrir árangursríkt og skemmtilegt mót. Stjórnin sendir einnig hjartans þakkir til allra starfsmanna sem að mótinu komu, sem eru boðnir og búnir að aðstoða félagið hvenær sem kallið kemur, hvort sem er í sól eða hryssingslegu veðri líkt og núna um helgina.

Skapti Hallgrímsson mætti á staðinn fyrir Akureyri.net og tók skemmtilegar myndir, sjá hér.

Að auki eru nokkrar skemmtilega myndir frá mótinu hér fyrir neðan:

Akureyrarmot Akureyrarmot

Akureyrarmot Akureyrarmot

Akureyrarmot Akureyrarmot

Akureyrarmot Akureyrarmot

Akureyrarmot Akureyrarmot
Ljósmyndarar Unnar Vilhjálmsson og Jóna Finndís Jónsdóttir