← Allar fréttir

Akureyrarhlaup 5. júlí

Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa og Átaks verður haldið fimmtudaginn 5. júlí 2018. Keppni í hálfmaraþoni er jafnframt Íslandsmeistaramót í greininni.

Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa og Átaks verður haldið fimmtudaginn 5. júlí 2018.
Keppni í hálfmaraþoni er jafnframt Íslandsmeistaramót í greininni.

UFA hélt fyrsta Akureyrarhlaupið í júlí 1992. Hlaupið bar þá heitið Akureyrarmaraþon en árið 2003 var heiti þess breytt í Akureyrarhlaup þar sem það þótti villandi að tala um maraþon þegar lengsta vegalengdin var hálft maraþon. Fyrstu árin var hlaupið haldið um miðjan júlí en undanfarin ár hefur það verið haldið á fimmtudagskvöldi í byrjun júlí, eina mestu ferðahelgi ársins á Akureyri þegar þúsundir manna flykkjast í bæinn til að taka þátt í fótboltamótum.

Keppt er í þremur vegalengdum, 5, 10 og 12,1 km. Brautin er flöt og því vænleg til góðra afreka og hafa margir hlauparar náð sínum bestu tímum í 10 km hlaupi og hálfmaraþoni í brautinni á undanförnum árum.

Hlaup fyrir alla, unga sem aldna, byrjendur sem lengra komna! Glæsileg útdráttarverðlaun í boði, allir sem forskrá sig hafa jafna möguleika.

Nánari upplýsingar hér.