1. maí hlaup UFA 2023
Um 350 hlauparar á öllum aldri tóku þátt í 1. maí hlaupi UFA í dag.

Um 350 hlauparar á öllum aldri tóku þátt í 1. maí hlaupi UFA í dag. Veðrið lék við okkur, þrátt fyrir nokkur snjókorn sem féllu þá var veðrið stillt og sólin braut sér leið og vermdi hópinn fljótlega eftir að hlaupið hófst.
Tæplega 100 leikskólabörn hlupu einn hring á vellinum eftir góða upphitun undir stjórn frjálsíþróttaþjálfarans okkar, Unnars Vilhjálmssonar. Kappið var mikið og sprettu þau vel úr spori.
Um 200 grunnskólabörn hlupu svo af stað í 2 km hring, í þremur hópum eftir aldri. Þau komu þreytt en sæl í mark eftir afrekið. Máttu þeir foreldrar sem fylgdu sumum eftir hafa sig öll við að fylgja þeim eftir.

Að lokum hófst 5 km hlaup og þar voru skráð til leiks um 30 krakkar og 20 fullorðnir. Leiðin var býsna löng og á fótinn lengi framan af en allir stóðu sig vel og skiluðu sér kátir í mark. Úrslit hlaupsins má nálgast hér.
Allir þátttakendur fengu þátttökupening að launum og frímiða í sund og þrír fyrstu í hverjum flokki í 5 km hlaupinu fengu verðlaunapeninga fyrir afrekið. Auk þess var pizzusneið frá Sprettinum og drykk frá MS í boði upp við Bogann fyrir hlaupara og þrír heppnir hlauparar fengu útdráttarvinning frá Sportver.
Við hjá UFA erum alsæl með þátttökuna, kraftinn og gleðina sem var í hópnum, hlökkum strax til næsta 1. maí hlaups.
Kunnum við styrktaraðilum hlaupsins bestu þakkir fyrir stuðninginn en þeir voru:
Akureyrarbær og Heilsueflandi samfélag, Þelamerkurskóli, Svalbarðsstrandarhreppur og Eyjafjarðarsveit. Sprettur-inn, MS, Sportver. Stéttarfélögin á Eyjafjarðarsvæðinu.
Kristófer Sigmarsson var með myndavélina á lofti og fylgdist með öllu hlaupinu: https://www.youtube.com/watch?v=siokxki6Hng
Akureyri.net mætti á svæðið og fangaði stemninguna í hlaupinu, þar má sjá skemmtilegar myndir af leikskóla og grunnskólahlaupinu.

