← Allar fréttir

1. maí hlaup UFA (2)

Frítt verður fyrir krakka á leikskóla- og grunnskólaaldri, ef þau eru skráð í forskráningu.

Verður haldið á frjálsíþróttavellinum við Bogann á Akureyri, sunnudaginn 1. maí og hefst kl 12:00

Leikskólahlaup: 400m - einn hringur á vellinum
Grunnskólahlaup: Keppni milli skóla um hlutfallslega bestu þátttökuna, hægt að velja um 2 km eða 5 km.
5 km hlaup með tímatöku: Fyrir fólk á öllum aldri.

Allir þátttakendur fá verðlaunapening, Greifapizzu og hressingu frá MS að hlaupi loknu. Þeir sem skrá sig í forskráningu geta unnið útdráttarverðlaun frá Sportveri.

Forskráning á netskraning.is og í Sportveri 30. apríl milli kl. 15:00 og 17:00.

Allir krakkar fá frítt í hlaupið, ef þau eru skráð í forskráningu, þökk sé Akureyrarbæ, Þelamerkurskóla, Eyjafjarðarsveit og Svalbarðsstrandarhrepp. Auk fyrrnefndra sveitarfélaga og skóla, styrkir Greifinn, MS, Sportver og stéttarfélögin á Eyjafarðarsvæðinu hlaupið, kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Frekar i upplýsingar og myndir af hlaupaleiðum má finna hér: https://www.ufa.is/is/langhlaupa-og-thrithrautardeild/gotuhlaup/1-mai-hlaup

Við hvetjum alla til að skrá sig í forskráningu: netskraning.is