← Allar fréttir

1. maí hlaup UFA (1)

Verður haldið á frjálsíþróttavellinum við Bogann á Akureyri, mánudaginn 1. maí og hefst kl 12:00

Verður haldið á frjálsíþróttavellinum við Bogann á Akureyri, mánudaginn 1. maí og hefst kl 12:00

Leikskólahlaup: 400m - einn hringur á vellinum
Grunnskólahlaup: Hægt að velja um 2 km eða 5 km.
5 km hlaup (ekki tímataka): Fyrir fólk á öllum aldri - verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í nokkrum aldursflokkum.

Allir skráðir þátttakendur fá verðlaunapening, pizzu frá Sprettinum og hressingu frá MS að hlaupi loknu. Allir skráðir þátttakendur hafa möguleika á að vinna útdráttarverðlaun frá Sportveri.

Eingöngu er hægt að skrá sig á netinu en keppnisgögn (númer) verða afhent í Sportveri sunnudaginn 30. apríl milli kl. 15:00 og 17:00 og í Hamri á keppnisdag frá 9:30 - 11:30.

Allir krakkar fá frítt í hlaupið, ef þau eru skráð í forskráningu, þökk sé Akureyrarbæ, Þelamerkurskóla, Eyjafjarðarsveit og Svalbarðsstrandarhrepp. Auk fyrrnefndra sveitarfélaga og skóla, styrkir Sprettur-inn, MS, Sportver og stéttarfélögin á Eyjafarðarsvæðinu hlaupið, kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Frekar i upplýsingar og myndir af hlaupaleiðum má finna hér: Nánari upplýsingar - 1. maí hlaup

Við hvetjum alla til að skrá sig og sína í hérna: Skráning í 1. maí hlaup