Götuhlaup UFA

Hausthlaup

Hefur verið haldið í september frá því árið 2010. Boðið er upp á tvær vegalengdir 5 og 10 km og hlaupinn sami hringur og í Akureyrarhlaupi. Umgjörð hlaupsins er einföld, engin verðlaun né veitingar og þjónusta við hlaupara í lágmarki.

Síður í þessum hluta

Hausthlaup UFA fer fram miðvikudaginn 16 september kl. 17:30.

Ræst er við Menningarhúsið Hof. Að venju er keppt í 5 km og 10 km vegalengdum þeim sömu og keppt er á í Akureyrarhlaupinu. Brautirnar eru með þeim hröðustu í landinu og því er þetta kjörið tækifæri til að taka stöðuna eftir sumarið og setja góðan tíma eða einfaldlega hlaupa sér til gamans í góðra vina hópi.

Skráning á staðnum á hlaupadag á milli 16:00-17:10. Þátttökugjald helst óbreytt líkt og undanfarin ár og er 1.000 kr.-

Hlaupaleiðir

Rás- og endamark er við Hof og er hlaupið um eyrina og meðfram ströndinni í átt að flugvellinum svo hlaupaleiðin er marflöt og vænleg til góðra afreka.

5 km hlaupaleið

Ræst er á göngustíg við Glerárgötu rétt sunnan við Hof. Hlaupið meðfram Glerárgötu, niður Strandgötu og tekinn sveigur yfir bílastæðið hjá Eimskip og inn á Laufásgötu. Laufásgata hlaupin til norðurs, beygt upp Silfurtanga og síðan beygt aftur inn á Hjalteyrargötu og henni fylgt að brú yfir Glerá. Hlaupið yfir brúna og beygt til hægri inn á göngustíg sem liggur niður með ánni og honum fylgt að smábátahöfninni. Hlaupið er meðfram verbúðunum framhjá höfninni síðan beygt inn á Óseyri og henni fylgt til baka að Hjalteyrargötu. Hlaupið til baka eftir Hjalteyrargötu að Standgötu og endað á sama stað og var byrjað á göngustígnum við Glerárgötu rétt sunnan við Hof.

10 km hlaupaleið

Ræst er á göngustíg við Glerárgötu rétt sunnan við Hof. Hlaupið meðfram Glerárgötu, niður Strandgötu og tekinn sveigur yfir bílastæðið hjá Eimskip og inn á Laufásgötu. Laufásgata hlaupin til norðurs, beygt upp Silfurtanga og síðan beygt aftur inn á Hjalteyrargötu og henni fylgt að brú yfir Glerá. Hlaupið yfir brúna og beygt til hægri inn á göngustíg sem liggur niður með ánni og honum fylgt að smábátahöfninni. Hlaupið er meðfram verbúðunum framhjá höfninni síðan beygt inn á Óseyri og henni fylgt til baka að Hjalteyrargötu. Hlaupið til baka eftir Hjalteyrargötu og Standgötu, í gegnum markvsæðið og síðan áfram eftir Glerárgötu og Drottningarbraut að snúningspunkti og sama leið til baka í mark.

Ein drykkjarstöð er á leiðinni eftir rúma 5 km, þar er boðið upp á vatn og orkudrykk.

21,1 km hlaupaleið

Í hálfmaraþoni er 10 km hringurinn hlaupinn tvisvar en snúningspunktur er 550 m sunnar í fyrri hringnum en þeim seinni, svo fyrri hringurinn er 1100 m lengri en sá seinni.

Ræst er á göngustíg við Glerárgötu rétt sunnan við Hof. Hlaupið meðfram Glerárgötu, niður Strandgötu og tekinn sveigur yfir bílastæðið hjá Eimskip og inn á Laufásgötu. Laufásgata hlaupin til norðurs, beygt upp Silfurtanga og síðan beygt aftur inn á Hjalteyrargötu og henni fylgt að brú yfir Glerá. Hlaupið yfir brúna og beygt til hægri inn á göngustíg sem liggur niður með ánni og honum fylgt að smábátahöfninni. Hlaupið er meðfram verbúðunum framhjá höfninni síðan beygt inn á Óseyri og henni fylgt til baka að Hjalteyrargötu. Hlaupið til baka eftir Hjalteyrargötu og Standgötu, í gegnum markvsæðið og síðan áfram eftir Glerárgötu og Drottningarbraut að snúningspunkti og sama leið til baka að markinu, þar í gegn og sami hringur hlaupinn aftur, en í seinni hring er snúningspunkturinn 500 m fyrr en í fyrri hringnum.

Drykkjarstöð er við markið þar sem farið er í gegn þrisvar sinnum, eftir rúma 5 km, tæplega 11 km og 16 km þar er boðið upp á vatn og orkudrykk.