Götuhlaup UFA

Gamlárshlaup

Næsta hlaup: 31. desember 2026 kl. 11:00

Fer fram að morgni gamlársdags. Boðið er upp á 5 km. og 10 km. með tímatöku. Kjörið tækifæri til að brenna af sér jólasteikinni og rýma til fyrir áramótasteikinni.

Síður í þessum hluta

Gamlárshlaup UFA verður á sínum stað kl. 11.00 á Gamlársdag og verður að þessu sinni hlaupið frá Bautanum.

Þetta er skemmtihlaup án tímatöku þar sem áherslan er á að fólk mæti og hafi gaman saman. Fyrir þá sem vilja spretta úr spori eru tvö Strava segment á leiðinni, annað 4 km og hitt 7,5 km.

Að loknu hlaupi komum við saman á Bautanum þar sem kjúklingasúpa verður í boði og verðlaun verða veitt fyrir bestu búningana ásamt útdráttarverðlaunum.

Þátttökugjald er 4000 kr og innifalið í því er kjúklingasúpa og kaffi.

Þátttökugjöld leggjast inn á reikning 0565-26-494291 kt. 490922-0160 með skýringunni Gamlárs. Sýna þarf kvittun við afhendingu ganga.

Leiðarlýsing

Hlaupið byrjar á gangstétt á Drottningarbraut á mörkum Drottningarbrautar og Kaupvangsstrætis. Hlaupið er fyrst til norðurs, meðfram Hofi og til austurs í átt að Eimskip. Þar er tekin hringur og hlaupið aftur fram hjá Hofi og svo í suður. Þeir sem ætla að hlaupa 4 km snúa við við gatnamótin við Leiru (verður keila þar). Þeir sem fara 7,5 k hlaupa inn að gatnamótum við flugvöll og snúa við þar (verður líka keila þar). Hlaupið endar svo á nánast sama stað og það hefst.