← Allar fréttir

Víðavangshlaup UFA

Langhlaupa- og þríþrautardeild UFA stendur fyrir víðavangshlaupasyrpu núna á haustmánuðum. Hlaupin verða fjögur hlaup á laugardögum í september og október. Fyrsta hlaupið verður haldið næstkomandi laugardag 14. september í Kjarnaskógi og hefst kl. 11:00. Mæting við Kjarnakot.

í hverju hlaupi verður boðið upp á tvær vegalengdir, u.þ.b. 1 km og u.þ.b. 5 km. Styttra hlaupið er hlaupið á undan og það lengra u.þ.b. 10 mínútum síðar. Þátttakendur geta því keppt í báðum vegalengdum ef áhugi er fyrir hendi.

Keppt verður í stigakeppni í báðum vegalengdum og í eftirfarandi flokkum: 8-10 ára, 11-13 ára, 14-16 ára og 17 ára og eldri. Fyrsta sæti gefur 10 stig, annað sæti 9 stig og svo koll af kolli.

Skráning fer fram á staðnum og hefst hálftíma fyrir hlaup. Ekkert þátttökugjald.