Uppskeruhátíð UFA
Uppskeruhátíð UFA var haldin

Uppskeruhátíð 2014Uppskeruhátíð UFA var haldin miðvikudaginn 3. desember klukkan 18 í Höllinni.
Margt var um manninn á hátíðinni þó svo að það hafi vantað suma sem áttu að fá viðurkenningu.
Foreldrar iðkenda komu með kræsingar á kaffihlaðborðið og þökkum við þeim kærlega fyrir það. Stórglæsilegar veitingar sem biðu iðkenda og annarra sem á staðnum voru.
Íslandsmeistarar félagsins sem voru fjöldamargir í ár fengu viðurkenningu fyrir árangur sinn og eins þeir sem settu Íslandsmet.
Að lokum var iðkendum í flokkunum 11 - 14 ára, 15 - 17 ára og 18 ára og eldri afhentir bikarar fyrir sérstaklega góðan árangur.
Í flokki 11 - 14 ára fékk Raguel Pino Alexandersson bikar fyrir mestu framfarirnar.
Í flokki 11 - 14 ára fékk Arnar Valur Vignisson bikar fyrir bestu ástundun, árangur og mætingu.
Í flokki 15 - 17 ára fékk Selma Líf Þórólfsdóttir bikar fyrir mestu framfarirnar.
Í flokki 15 - 17 ára fékk Einar Gíslason bikar fyrir bestu ástundun, árangur og mætingu.
Í flokki fullorðinna fékk Hafdís Sigurðardóttir bikar fyrir að vera stigahæsta konan - 1048 stig (6,45 langstökk).
Í flokki fullorðinna fékk Kolbeinn Höður Gunnarsson bikar fyrir að vera stigahæsti karlinn. 1021 (21,76 200m)
Í flokki fullorðinna fékk Hafdís Sigurðardóttir bikar fyrir besta afrekið en það var í langstökki með stökk upp á 6,72 sem gera 1143 stig. Stökk sem er hefði skilað henni á Olympíuleika ef ekki hefði verið örlítið of mikill meðvindur.
Treystum því að hún geri þetta í logni næsta sumar :-)

