← Allar fréttir

UFA fékk styrk frá Norðurorku

Norðurorka afhenti styrki til samfélagsverkefna vegna ársins 2024

Norðurorka afhenti styrki til samfélagsverkefna vegna ársins 2024 í athöfn sem fór fram í Menningarhúsinu Hofi fimmtudaginn 25. janúar sl.

Ungmennafélag Akureyrar hlaut styrk fyrir ferð á Gautaborgarleikana í frjálsum íþróttum. Jóna Finndís Jónsdóttir formaður UFA tók við styrknum fyrir hönd félagsins.

Um 30 iðkendur UFA stefna á að fara á mótið í júlí 2024. Styrkurinn kemur sér afar vel til að fjármagna ferðakostnað þjálfara. Það er mikil upplifun fyrir krakka að fara að keppa á stórmóti sem þessu. Aðstæður eru frábærar á vellinum sem keppt er á og allt utanumhald um mótið til fyrirmyndar. Ferð á mót sem þetta hvetur krakka til dáða við æfingar í marga mánuði fyrir mótið og gefur þeim reynslu sem þau búa að við æfingar og keppni eftir mótið.

Frétt um styrkafhendinguna má nálgast á heimasíðu Norðurorku: https://www.no.is/is/um-no/frettir/uthlutun-samfelagsstyrkja-2040

NO