← Allar fréttir

Til hamingju Tobías

EM U18 LÁGMARK hjá Tobíasi

Tobías Þórarinn Matharel (UFA) átti frábært langstökk á Meistaramóti Íslands á Selfossi sem fram fór um helgina. Þar gerði hann sér lítið fyrir og rauf 7 metra múrinn þegar hann vann langstökkskeppnina með stökki upp á 7,00 m. Þetta er fjórða lengsta stökk íslensks pilts í flokki 16-17 ára.

Ekki nóg með það heldur er þessi frábæri árangur hans lágmark fyrir Evrópumeistaramót U18 sem fram fer á Ítalíu um miðjan júlí 2026.