← Allar fréttir

Styrkur úr afrekssjóði Akureyrar

UFA hlýtur styrk upp á kr. 575.000 úr afrekssjóði Akureyrar vegna sex íþróttamanna.

Stjórn Afrekssjóðs Akureyrar samþykkti fyrir skemmstu að styrkja átta aðildarfélög ÍBA vegna 18 afreksíþróttamanna úr þeirra röðum. Alls var úthlutað 1.825.000 milljónum króna.

UFA hlaut styrk upp á kr. 575.000 vegna sex íþróttamanna, Ásgerðar Jönu Ágústdóttur, Bjarka Gíslasonar, Hafdísar Sigurðardóttur, Kolbeins Haðar Gunnarssonar, Rannveigar Oddsdóttur og Þorbergs Inga Jónssonar.