Smáþjóðaleikarnir
UFA keppendurnir hafa staðið sig gríðarlega vel á 16. Smáþjóðaleikunum.

Keppendur UFA hafa staðið sig gríðarlega vel á 16. Smáþjóðaleikunum.
Hafdís Sigurðardóttir sigraði örugglega í langstökki með stökk upp á 6,50 m. Meðvindur var þó of mikill til að árangur verði staðfestur. Hafdís varð síðan önnur í 100 m hlaupi kvenna á 11,87 sek.
Kolbeinn Höður Gunnarsson lenti í öðru sæti í 400 m hlaupi karla á tímanum 48,44 sek. Kolbeinn Höður hljóp síðan undannrásir í 200 m skömmu síðar og vann sinn riðil á 21,62 sek.
Anna Berglind Pálmadóttir kom fjórða í mark í 10.000 m hlaupi kvenna á tímanum 38:58,23 mín.
Steinunn Erla Davíðsdóttir varð fimmta í 400 m hlaupi kvenna á 56,67 sek. Þetta er hennar besti árangur í greininni.
Selma Líf Þórólfsdóttir varð sjötta í hástökki kvenna þegar hún stökk yfir 1,65 m.
Bjartmar Örnuson varð sjöundi í 800 m hlaupi karla á tímanum 2:01,60 mín.
Úrslit mótsins má finna á slóðinni http://46.149.29.198/motfri/SelectedCompetitionEvents.aspx

