← Allar fréttir

MÍ 11-14 ára (3)

UFA piltar 14 ára sigrðuðu í stigakeppninni með 111,00 stig.

Ragúel Pino (14 ára) sigraði í 60m grind, langstökki og 800m hlaupi. Þá lenti hann í 1-2 sæti í hástökki, varð annar í kúluvarpi sem og í 60m hlaupi.

Kolbeinn Fannar Gíslason (14 ára) lenti í 1-2 sæti í hástökki, varð þriðji í 60m grind, og þriðji í langstökki.

Jón Þorri Hermannsson (13 ára) sigraði í langstökki, varð annar í 60m hlaupi og þriðji í 800m, hástökki og kúluvarpi.

Jón Þorri, Bjarki Jarl, Ragúel og Kolbeinn Fannar sigruði í 4x200 metra boðhlaupi í flokki 14 ára pilta.

Kara Hildur Axelsdóttir (14 ára) lenti í þriðja sæti í 60m grind.

Sunneva Kristjánsdóttir (13 ára) sigraði í hástökki.

Glódís Edda Þuríðardóttir (12 ára) sigraði í 60m hlaupi og langstökki. Þá varð hún önnur í hástökki.

Sara Ragnheiður (12 ára) lenti í þriðja sæti í 60m hlaupi og langstökki.

Þura, Sigurjóna, Sara Ragnheiður og Glódís Edda lentu í öðru sæti í 4x200 metra boðhlaupi í flokki 12 ára stúlkna.

Stigakeppnin fór þannig:

UFA lenti í 4.sæti í heildina með 309,67 stig.

Stúlkur 12 ára 3.sæti með 63,50 stig.

Piltar 13 ára 2.sæti með 43,00 stig.

Piltar 14 ára 1.sæti með 111,00 stig.

Glæsilegur árangur