Íþróttamaður UFA - annar hluti
Ef það ætti að veita verðlaun fyrir góðar minningar, sigra á sjálfum sér og titla þá fengu allir verðlaun. Nokkrir verða teknir út og verðlaunaðir sérstaklega fyrir sín afrek og þeir fá sviðljósið hér.

Tilnefnd til iþróttakonu Akureyrar
Anna Berglind Pálmadóttir
Anna Berglind hefur náð gríðarlega góðum árangri í hlaupum á undanförnum árum og var enn að sækja bætingar þetta árið. Hún bætti sig í maraþoni, 10 km hlaupi og 3000 á árinu og setti um leið aldursflokkamet í þeim greinum í flokki 45-49 ára kvenna, en fyrir átti hún aldursflokkametin í hálfmaraþoni og 5 km á götu, og 1500 og 10.000 á braut utanhúss. Á árinu tók hún einnig aldursflokkamet í 1000 m hlaupi utanhúss.
Anna Berglind hefur einnig verið í fremstu röð íslenskra kvenna í utanvegahlaupum. Í sumar náði hún sínu besta ITRA skori frá upphafi í Laugavegshlaupinu þegar hún hljóp á 4:56:37, en aðeins fjórar konur hafa hlaupið Laugaveginn hraðar en það. Anna Berglind var valin í landsliðið sem keppti á Heimsmeistaramóti í utanvegahlaupum sem haldið var á Canfranc á Spáni í september, hljóp þar 45 km hlaup og stóð sig með sóma í því sem öðrum haupum ársins.
Anna Berglind hefur verið í fremstu röð íslenskra hlaupara um margra ára skeið. Hún er enn að bæta sig og gefur þeim yngri ekkert eftir. Hún er því sterk fyrirmynd sem snýir hvernig hægt er að ná framúrskarandi árangri þótt komið sé fram yfir þann aldur sem almennt er takinn kjöraldur til afreka.
Tilnefndur til Íþróttakarls Akureyrar
Þorbergur Ingi Jónsson
Þorbergur Ingi sýndi enn og aftur á árinu hve framúrskarandi íþróttamaður hann er. Hann var sem áður fremstur í flokki í utanvegahlaupum hér heima og náði líka góðum árangri í OCC sem er eitt sterkasta utanvegahlaup í heimi. Þorbergur Ingi var valinn í landsliðið sem keppti á Heimsmeistaramóti í utanvegahlaupum sem haldið var á Canfranc á Spáni í september og hljóp þar 82 km hlaup.
Þorbergur Ingi hefur verið í fremstu röð íslenskra langhlaupara í mörg ár. Þorbergur Ingi er sterk fyrirmynd annarra hlaupara og brennandi áhugi hans á utanvegahlaupum hefur smitað út frá sér og haft jákvæð áhrif á uppbyggingu íþróttarinnar á Akureyri og landinu öllu.

