← Allar fréttir

Íþróttamaður Akureyrar - þrír fulltrúar UFA tilnefndir

Fimmtudaginn 29. janúar kl. 17.30 verður kjöri íþróttakonu og íþróttakarls Akureyrar fyrir árið 2025 lýst. Þetta er í 47. sinn sem Íþróttamaður Akureyrar er heiðraður og í tíunda sinn þar sem bæði íþróttakona- og íþróttakarl Akureyrar eru valin og heiðruð.

Hátíðin verður haldin í Hofi og er opin öllum íbúum.
Þrír fulltrúar UFA eru tilnefndir í ár, ein kona og tveir karlar:

  • Stefanía Daney Guðmundsdóttir - UFA – frjálsar íþróttir
  • Baldvin Þór Magnússon - UFA - hlaup
  • Þorbergur Ingi Jónsson – UFA – hlaup

Sjá nánar: Íþróttahátíð Akureyrar | Íþróttabandalag Akureyrar