← Allar fréttir

Frábær árangur hjá UFA keppendum á RIG 2022

Þrír vaskir liðsmenn UFA kepptu á Reykjavík International Games sem fór fram í Laugardalshöll í dag og stóðu sig glæsilega.

Þrír vaskir liðsmenn UFA kepptu á Reykjavík International Games sem fór fram í Laugardalshöll í dag og stóðu sig glæsilega. Um er að ræða alþjóðlegt afreksíþróttamót fjölmargra íþróttagreina þar sem öflugasta íþróttafólki landsins er boðin þátttaka.

Birnir Vagn Finnsson varð í 2. sæti í langstökki, stökk 6,68 m, og í 4. sæti í 60m hlaupi karla á tímanum 7,14 sek.

Pétur Friðrik Jónsson og Brynjar Páll Jóhannsson kepptu báðir í flokki yngri en 16 ára (U16) og urðu í 5. og 6. sæti í 60m hlaupi á tímunum, 8,02 sek og 8,03 sek. Pétur Friðrik var þar sjónarmun á undan, um er að ræða persónulegt met hjá Brynjari Páli.

Við óskum piltunum innilega til hamingju með frábæran árangur!

RIG

RIG

RIG

RIG

Myndir frá FRÍ og Unnari Vilhjálmssyni