Bikarlið Norðurlands í 3.sæti í Bikarkeppni FRÍ
Bikarkeppni FRÍ fór fram um síðastliðna helgi á Laugardalsvelli. Líkt og undanfarin ár þá keppir UFA undir merkjum Norðurlands ásamt UMSS, UMSE og HSÞ. Skemmst er frá því að segja að lið Norðurlands hafnaði í þriðja sæti í heildarstigakeppninni með 141 stig en lið ÍR sigraði með 192 stig og FH hafnaði í öðru sæti með 165 stig.
Kvennalið Norðurlands hafnaði í þriðja sæti í kvennakeppninni en karlaliðið í því fjórða. Keppendur frá Norðurlandi voru öflugir við að hala inn stigum fyrir sitt lið en öll úrslit má finna á
http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/media/vmot2327.htm

