Bikarkeppni FRÍ 15 ára og yngri
Strákarnir sigruðu með 53,0 stig en í heildarstigakeppninni hafnaði lið Norðurlands í þriðja sæti með 77,0 stig.
Helsti árangur liðsins.
Viktor Hugi Júlíusson lenti í öðru sæti í 60 m hlaupi á tímanum 7,88 sek.
Helgi Pétur Davíðsson sigraði 400 m á tímanum 55,30 og 1500 m hlaup á tímanum 5:19,72 mín.
Arnar Valur Vignisson sigraði 60 m grind á tímanum 9,20 sek.
Ragúel Pino sigraði hástökkið með stökk upp á 1,69 og langstökkið með stökk upp á 5,81.
Jón Þorri Hermannsson lenti í þriðja sæti í kúluvarpi með kast upp á 9,38 metra.
Glódís Edda Þuríðardóttir varð í þriðja sæti í 60 m á tímanum 8,67 sek og í þriðja sæti í langstökki með stökk upp á 4,74 metra.
Þá sigruðu strákanir 4x200 m. Liðið skipaði Arnar Valur, Viktor Hugi, Helgi og Bjarki.

