← Allar fréttir

Akureyrarmótið

Þrátt fyrir kulda og tæknilega örðuleika þá gekk Akureyrarmótið mjög vel og margir með bætingu, sjá úrslit hér http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/timesedillib2496.htm Hafdís Sigurðardóttir sem stefnir að því að ávinna sér rétt til þáttöku á HM í Kína í lok ágúst átti góða stökkseríu. Hafdís stökk sex sinnum yfir 6 metra og þar af voru fimm stökk á bilinu 6,25 til 6,45. Vindur var á bilinu 0,9-2.6 m/sek á meðan langstökkskeppnin fór fram. Fimm stökk Hafdísar voru löggild þar sem vindhraði var undir 2.0m/sek. Lengsta stökk Hafdísar við löglegar aðstæður mældist 6,33m. Það verður spennandi að fylgjast með henni á Meistaramóti Íslands um næstu helgi. Í lokin vill stjórn UFA þakka öllum þeim sem komu að vinnu á Akureyrarmótinu kærlega fyrir hjálpina. Án ykkar er ekki hægt að halda mót fyrir börnin okkar. Áfram UFA

Þrátt fyrir kulda og tæknilega örðuleika þá gekk Akureyrarmótið mjög vel og margir með bætingu, sjá úrslit hér http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/timesedillib2496.htm

Hafdís Sigurðardóttir sem stefnir að því að ávinna sér rétt til þáttöku á HM í Kína í lok ágúst átti góða stökkseríu. Hafdís stökk sex sinnum yfir 6 metra og þar af voru fimm stökk á bilinu 6,25 til 6,45. Vindur var á bilinu 0,9-2.6 m/sek á meðan langstökkskeppnin fór fram. Fimm stökk Hafdísar voru löggild þar sem vindhraði var undir 2.0m/sek. Lengsta stökk Hafdísar við löglegar aðstæður mældist 6,33m. Það verður spennandi að fylgjast með henni á Meistaramóti Íslands um næstu helgi.

Í lokin vill stjórn UFA þakka öllum þeim sem komu að vinnu á Akureyrarmótinu kærlega fyrir hjálpina. Án ykkar er ekki hægt að halda mót fyrir börnin okkar.

Áfram UFA